Um gróðurelda.is
Gróðureldar eru sem betur fer ekki algengir á Íslandi en geta verið illviðráðanlegir ef eldur berst í þurran gróður. Á undanförnum áratugum hefur trjám verið plantað í miklum mæli á Íslandi. Ógrisjaður, þéttur skógur getur verið illfær vegna þess að greinar hans eru samfléttaðar frá skógarbotni og upp úr. Slíkur skógur er hættulegastur með tilliti til gróðurelda. Veðurfar hefur mikil áhrif á hættu á gróðurbruna og miklir gróðurbrunar verða yfirleitt í langvarandi þurrkum og hvassviðri. Eldur og reykur getur stefnt lífi fólks í hættu og valdið verulegu eignatjóni. Rétt viðbrögð og forvarnir geta þá skipt sköpum og er tilgangur þessa bæklings að kynna helstu atriði sem nauðsynlegt er að hafa í huga varðandi eld í gróðri.
Stýrihópur um
Forvarnaaðgerðir gegn gróðureldum
grodureldar.is er gefið út af stýrihóp um forvarnaaðgerðir gegn gróðureldum á Íslandi.