Sumarhúsaeigendur
Mikilvægt er að gera ráð fyrir öryggissvæði allt að 1,5 m umhverfis hús, þar sem gróðri er haldið í lágmarki. Ef húsið stendur í brekku þarf öryggissvæðið að ná lengra niður brekkuna. Þar sem hægt er að koma því við er beit hrossa eða sauðfjár í takmarkaðan tíma, til að halda grasvexti niðri, afar ákjósanlegur kostur því þannig má takmarka sinu, ef ekki er hægt að koma við slætti. Umgengni umhverfis hús og í skógi skiptir miklu máli. Undir veröndum sumarhúsa á ekki að safna rusli eða geyma bensín, gaskúta, hjólbarða eða áburð. Hægt er að hólfa ræktarland með því að leggja malarstíga eða skipta upp landinu á annan hátt með gróðurlausum beltum. Miklilvægt er að huga að flóttaleiðum og hafa til staðar útbúnað til lágmarks eldvarna.
Gas og eldsneyti
Geymdu gaskúta og eldsneytisgeyma á öruggum stað.
Vatn
Tryggðu auðveldan aðgang að vatni.
Eldvarnir
Eldvarnir innandyra eru einnig mikilvægar.